Finndu réttu kökuna

Kökur fyrir öll tilefni 2

Hvort sem það er afmæli, brúðkaup, skírn eða veisla, þá höfum við kökuna sem passar.

Skemmtilegar og persónulegar kökur fyrir afmæli og veislur.

Klassískar og vinsælar tertur, handgerðar með gæða hráefni.

Kökur fyrir lífsins stærstu stundir og minnisstæð tilefni.

Súrdeigsbrauð

Brauðin okkar eru öll
löguð úr súrdeigi á
gamla mátann

Það á einnig við um rúnnstykkin okkar.

Kaka eftir þínu höfði

Draumakakan þín

Ertu með ákveðna hugmynd að köku eða skreytingu sem þú finnur ekki í netversluninni?

Segðu okkur frá tilefninu og því sem þú hefur í huga og við skoðum hvernig við getum útfært það fyrir þig.

Hvort sem um er að ræða afmæli, fermingu, brúðkaup, útskrift, fyrirtækjaveislu eða annað sérstakt tilefni leggjum við metnað í að útfæra kökuna eftir þínum óskum, allt frá litum og skreytingum til þema og stærðar.

Afgreiðslutími á sérpöntun er lágmark 2 virkir dagar.

Afbóka þarf með minnst þriggja daga fyrirvara.

Geymist í kæli. Takið út 3 klst. fyrir framreiðslu.

Fyrirspurn um sérpöntun

Sérpöntun

Sástu tertu á Instagram hjá okkur?

Langar þig í svona tertu? Afritaðu hlekkinn á Instagramfærsluna og límdu hann í reitinn hér fyrir neðan.

Í síma: Smelltu á deilingarörina og veldu „Copy link“.
Í tölvu: Smelltu á punktana þrjá (•••) og veldu „Copy link“.

Við notum upplýsingarnar sem þú sendir okkur til að vinna úr fyrirspurninni þinni og hafa samband við þig vegna hennar. Sjá nánar í persónuverndarstefnu okkar.